Kristján var fæddur að Djúpalæk í Skeggjastaðahreppi í Norður Múlasýslu. Að loknu námi í Eiðaskóla og Menntaskólanum á Akureyri hóf hann búskap í Staðartungu ásamt eiginkonu sinni. Hjónin brugðu búi 1943 og fluttu til Akureyrar. Hann varð þekktur sem ljóðskáld og höfundur vinsælla dægurlagatexta og sendi frá sér þrettán ljóðabækur. Heildarkvæðasafn hans, Fylgdarmaður húmsins, kom út 2007.