Nína fæddist á Seyðisfirði árið 1913. Hún flutti til Reykjavíkur ung að árum og lauk námi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1930 og hlaut viðurkenningu fyrir pennateikningu. Hún sótti tíma hjá Finni Jónssyni og Jóhanni Briem í tvo vetur og var við nám í Listaháskólanum í Kaupmannahöfn 1935 til 1939. Hún hélt sína fyrstu sýningu í Reykjavík árið 1942 og sýndi þar expressjónísk olíumálverk, teikningar og smámyndir. Nína sýndi verk sín víða um heim, enda bjó hún erlendis í þrjátíu ár, í London, París og New York.