Karl lærði ungur á píanó en orgelið varð þó snemma það hljóðfæri sem honum féll best í geð. Eftir miðjan sjöunda áratuginn lék hann með vinsælum hljómsveitum, meðal annars Trúbroti. Síðar stundaði hann tónlistarnám við virta tónlistarháskóla í Vínarborg, Salzburg og Boston. Að námi loknu var hann um skeið organleikari í Neskaupstað, en flutti síðar í sveitarfélagið Ölfur þar sem hann lék á orgel í fimm kirkjum og stjórnaði kórum í þeim. Karl lést árið 1991, fertugur að aldri.