Bríet Héðinsdóttir, leikkona og leikstjóri, fæddist í Reykjavík 14. október 1935. Hún lék á ferli sínum meira en 80 hlutverk, langflest hjá Þjóðleikhúsinu. Hún lék auk þess mikið í útvarpi og einnig nokkuð í sjónvarpi og kvikmyndum. Bríet var afkastamikill leikstjóri og samdi að auki leikgerðir eftir mörgum íslenskum skáldsögum. Má þar nefna Jómfrú Ragnheiði, Svartfugl og Hið ljósa man eftir sögum Kambans, Gunnars Gunnarssonar og Halldórs Laxness.