Þegar Maria Santos, portúgölsk fiskverkakona finnst látin í Vestmannaeyjum skekur það fjölskyldu hennar sem og samfélag litla sjávarþorpsins. Soffía Falsdóttir, rannsóknarlögreglukona frá Reykjavík er kölluð til að rannsaka málið, en það vill svo til að hún er ættuð frá Vestmannaeyjum og sonur hennar þekkir til dóttur fórnarlambsins.
Rannsókn á dauða Mariu Santos heldur áfram og dóttir hennar, Bela, byrjar að reyna að átta sig á brotum úr eigin fortíð og móður sinnar. Á sama tíma uppgötvar Soffía fyrstu vísbendingar sem benda til óþægilegra tengsla milli Maríu og þeirra sem hún treysti.