Brynja Benediktsdóttir var leikari og leikstjóri við Þjóðleikhúsið um þriggja áratuga skeið. Hún var líka leikskáld og samdi m.a. leikverkið Inúk ásamt leikhópi, svo og Ferðir Guðríðar en bæði þessi verk hafa verið sýnd víða um heim við góðan orðstír. Síðasta áratuginn rak Brynja eigið leikhús, Skemmtihúsið við Laufásveg.