Sigurður Nordal var bókmenntafræðingur, heimspekingur og rithöfundur. Hans er einkum minnst fyrir merkilegt framlag til íslenskra fræða, m.a. kenningar um uppruna Íslendingasagna, ritverkið Íslensk menning og Íslenska lestrarbók 1400-1900 um samhengið í íslenskum bókmenntum, en hún kom út 1924 og var notuð í skólum í áratugi.