Í fyrsta þætti af Taskmaster Ísland kynnumst við þeim fimm keppendum sem takast á um titilinn Taskmaster Íslands. Keppendur seríunnar eru Edda Björgvinsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Snjólaug Lúðvíksdóttir, Sverrir Þór Sverrisson og Vilhelm Netó. Keppnir þáttarins voru bæði fjölbreyttar og krefjandi: besti hluturinn sem gengur fyrir rafhlöðu, slökkva á kerti og tekist á við blinda blöðruþraut.
Í sjötta þætti af Taskmaster Ísland fylgjumst við með hópakeppni sem m.a. felur í sér skeiðar. Þá kemur í ljós hver hryllilegasti hluturinn í eldhúsinu er, og hver á mögnuðustu textasmíðina?
Banani í flösku, krúttlegasti hluturinn og púlsinn á Jóa þetta og fleira kemur við sögu í sjöunda þætti af Taskmaster Ísland.
Í áttunda þætti af Taskmaster Ísland má ekki blikka, keppendur kanna hvert er besta hljóðið og það þarf að pakka fyrir fríið.
Í níunda þætti af Taskmaster Ísland rústa Edda, Siggi, Snjólaug, Sveppi og Villi köku, sýna fallegasta heimagerða hlutinn og leggja í stigaleit.