Að margra dómi var Þórbergur einn frumlegasti og vinsælasti rithöfundur og hugsuður sem uppi var hér á landi á 20. öld. Skáldferilinn hóf hann árið 1915 með ljóðabókinni Hálfir skósólar undir dulnefninu Styrr Stofuglamm en nokkrum árum síðar kom út skáldævisagan Bréf til Láru undir hans eigin nafni. Meðal annarra þekktra bóka hans má nefna Íslenskan aðal, Ofvitann og Sálminn um blómið.