Herdís Þorvaldsdóttir leikkona fór með fjölmörg hlutverk á sviði Þjóðleikhússins allt frá því að það tók til starfa 1950 en þá lék hún Snæfríði Íslandssól í Íslandsklukkunni. Hún lék líka í leikverkum í Útvarpinu og Sjónvarpinu og í kvikmyndum. Hún var náttúruunnandi og lét til sín taka í baráttu fyrir gróðurvernd á Íslandi, ritaði greinar í blöð og tímarit um það efni og stóð að gerð heimildarmyndar um lausagöngu búfjár á Íslandi.